Einkenni:
Hún er ryðgul eða ljósgulbrún á bol og vængi, með dökkum langrákum á baki og að neðanverðu. Stélið er þverrákótt og snubbótt.
Branduglan er sjaldgæfur varpfugl á Íslandi en fer fjölgandi, hún er eina uglan sem verpir að staðaldri á landinu, það er auðveldast á sjá hana í ljósaskiptunum á sumrin þegar hún er að leita af fæðu fyrir ungana sína.
Fæða: Hagamýs og smáfuglar
Kjörlendi:
Mýrlendi, kjarr, lyngheiðar og foksandshólar. Heldur sig á veturna í skóglendi og görðum þar sem hagamýs er að finna.
Fræðiheiti: Asio flammeus
Lengd: 34-43 cm
Þyngd: 206 – 475 g.
Vænghaf: 85-103 cm
Varp og ungatímabil
Verpur í lyngmóum, kjarri eða graslendi, oft þar sem blautt er. Hreiðrið er oftast falið í lyngi eða runna. Ungar klekjast ekki samtímis og geta verið mjög misstórir. Hreiðrið er grunn skál eða laut á jörðu niðri.
Varptímabil: Um miðjan maí fram í miðjan ágúst
Fjöldi eggja: 4-8
Liggur á: 24-29 dagar
Ungatími: 28-35 dagar
Dvalartími á Íslandi: Frá miðjum apríl fram í miðjan október