Page 1 of 1

Skoðunarferð að Stafnesvita á Suðurnesjum

Posted: Mon May 01, 2017 3:33 pm
by Ægir
Ég fór í fyrradag með stelpuna mína sem er 8 ára í skoðunarferð til að sýna henni hálegginn í Garði og nátthegrana við Stafnesvita. Hún er mikil áhugamanneskja um fugla og vildi endilega sjá þessa og mynda þá svo hún gæti bætt þeim á fuglalistann sinn. Í þessari ferð náði hún fjórum nýjum fuglum á listann. Við byrjuðum á því að fara að Stafnesvita til að skoða nátthegrana en þeir voru ekki á staðnum svo að við keyrðum í átt að Sandgerði en mættum fljótlega Guðmundi Falk sem sagði okkur að fuglarnir væru oft í fjörunni bak við hvíta kubbahúsið svo að við snérum við og fórum þangað. Þar voru tveir nátthegrar í flottu færi svo að við mynduðum þá vel og vandlega. Næst ókum við til baka og fljótlega eftir að við komum út af afleggjaranum að stafnesvita þá komum við að malarvegi sem liggur niður að fjöru, við fórum þangað og löbbuðum ca. 100 metra norður með fjörunni, þar eru tvær tjarnir, ég hafði myndað þar brandendur einum eða tveimur dögum fyrr svo við fórum að athuga hvort þær væru þar og auðvitað voru þær á tjörninni svo að stelpan fékk óvænt brandendur á listann sinn. Við héldum þá áfram leið okkar til baka og stoppuðum við Fuglavíkurtjörnina og vorum að vona að við gætum séð hjálmöndina sem er þar en við vorum ekki svo heppin. Áfram héldum við til Sandgerðis þar sem Guðmundur Falk hafði séð grálóu nokkrum mínútum áður, við hittum hann í fjörunni neðan við bensínstöðina en vorum ekki svo heppin að sjá grálóuna, hún hafði fært sig til en þess í stað sáum við landsvölu sem stelpan hafði aldrei séð áður. Því næst héldum við í Garðinn til að skoða hálegginn en hann var ekki á staðnum svo að við fórum að Garðskagavita og skoðuðum fugla þar í smá stund á meðan við biðum eftir honum, þegar við komum aftur að tjörninni hans þá var hann mættur á svæðið og við mynduðum hann úr nokkurra metra fjarlægð, í eitt skiptið labbaði hann svo nálægt okkur að ég náði honum ekki inn í rammann.

Þessi ferð endaði sem sagt þannig að stelpan mín gat bætt nátthegrum, hálegg, brandöndum og landsvölu á fuglalistann sinn, hún myndaði nátthegrana og hálegginn vel og á fullt af flottum myndum eftir ferðina, hún er með Canon 40D myndavél og var með canon 70-200 f/2.8 + 1.4x stækkara sem ég lánaði henni.

kveðja
Ægir

Re: Skoðunarferð að Stafnesvita á Suðurnesjum

Posted: Mon May 01, 2017 9:54 pm
by armannsnj
Þetta hefur verið góður dagur hjá ykkur.Fannstu Hringöndina á Vífilsstaðavatni?

Re: Skoðunarferð að Stafnesvita á Suðurnesjum

Posted: Tue May 02, 2017 8:54 am
by Ægir
Já ég fann hringöndina svo að það er búið að haka við hana á listanum :P
En ég hef ekki komist í gott ljósmyndafæri við hana ennþá, ég er bara með myndir til sönnunar en þær eru skelfilegar, ég tók þær í slagveðrinu í gær. Ég ætla að reyna að ná myndum af henni síðar í vikunni þegar veðrið verður betra.