Háleggur
Posted: Sun Apr 30, 2017 9:35 pm
Á sumardaginn fyrsta þann 20.apríl 2017 sást hér á landi Háleggur í fyrsta skipti. Í viðhengi er mynd af þeim fugli þar sem hann berst á móti roki og rigningu. Þó að það hafi verið rigning og rok þá var líka sól og myndin er tekin á móti sólinni, ég hefði heldur verið til í að vera sólarmegin og mynda hann þaðan, það hefði komið mikið betur út.